Ég heiti Andri Daði og er 5 ára



Ég fæddist þann 18.apríl 2005 kl 18:23 á sjúkrahúsinu í Keflavík. Ég fæddist 15 merkur og 51 cm. Ég er alveg óendanlega sætur, enda eru allir alveg rosalega skotnir í mér. Mamma mín heitir Jóna Rúna Erlingdóttir og pabbi minn heitir Rúrik Hreinsson. Við búum í Grindavík og svo á ég alveg fullt af ömmum og öfum, ekkert smá ríkur:)






Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barn í hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni. Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér ? það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum. Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar. Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á.

Pabbi er maðurinn
Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda að það hafi ekki fæðst barn áður en
það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki geta sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.
Samt veit hann allt!!
Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hækt að fara að leika við mann og kenna manni
ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.

Pabbi er besti maður í heimi.



Mamma er konan

Sem kemur manni í heiminn með mikili fyrirhöfn, fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ásthúð sem lítið barn þarf á að halda.
Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað meira um sig sjálfur til dæmis að vera í hreinum fötum, laga til í herberginu sínu leyfir mamma manni það ekki því hún er svo vön að hugsa svo vel um barnið sitt.
Mamma er alltaf til staðar þegar þarf á að halda, þerra tárin þegar það er leiðinlegt og gleðjast með manni þegar gaman er að vera til.

Mamma er besta konan í heiminum.


Ég búði til eitt handa þínum,
það var mynd af hjartanu í mínum.
Á því er gluggi og þar var þinns,
því þinns er bestasti vinur minns!

Börnin læra af uppeldinu

Barn sem elst upp við gagnrýni lærir að dæma aðra

Barn sem elst upp við óvild lærir að berjast

Barn sem elst upp við háð lærir feimni

Barn sem elst upp við skömm lærir sektarkennd

Barn sem elst upp við hvatningu lærir sjálfstraust

Barn sem elst upp við hrós lærir þakklæti

Barn sem elst upp við sanngirni lærir réttlæti

Barn sem elst upp við öryggi lærir trúnað

Barn sem elst upp við virðingu lærir að meta sjálft sig rétt

Barn sem elst upp við viðurkenningu lærir að leita kærleikans í heiminum



EF KARLMENN GENGU MEÐ BÖRNIN?


Væri barneignarfrí á fullum launum lágmark tvö ár...
Væri búið að finna lækningu við appelsínuhúð...
Væri "náttúruleg" fæðing úr sögunni...
Væri morgunógleði talið helsta heilsuvandamál þjóðarinnar...
Væri árangur getnaðarvarnapilla 100%...
Væru börn geymd á spítalanum þar til þau kynnu sjálf að fara á kopp...
Væru menn æstir í að binda sig...
Væru tvíburar ekki svona rosalega krúttlegir í þeirra augum...
Yrðu synir að vera komnir heim af stefnumótinu klukkan tíu á kvöldin...
Væru skjalatöskur notaðar sem bleyjugeymsla...
Væru óléttuföt helsta tískuframleiðsla heims...
Væru þeir rúmliggjandi alla níu mánuðina...
Myndu konur stjórna heiminum...




?Íris Huld frænka mín?

?Hildur Ýr frænka mín?

?Hafliði Ottó frændi minn?

?Ólafur Feryr frændi minn?

?Erling Snær frændi minn?

?Júlía Rós frænka mín?

?Hildur Harpa?

?Jón Sverrir frændi minn

?Sesar Máni vinur minn?

?Sandra Dögg vinkona mín?

?Emelía Rakel vinkona mín?